Langt síðan að ég hef bloggað

Loksins finnst mér eins og hamingjan ríki yfir mér fyrsta skiptið í mörg ár

á það einum pilti að þakka það er sonur minn hann fyllir mig lífsgleði dag hvern ég þakka guði fyrir þennan yndislega dreng sem hann gaf mér

Líf mitt hefur ekki alltaf verið dans á rósum- einelti frá 5 ára aldri alveg upp í menntaskóla það var örugglega þess vegna sem ég hætti að mennta mig fannst ég aldrei fitta inn í neinn hóp hvorki í grunnskóla né menntaskóla. eignaðist allvena 2 góðar vinkonur í grunnskóla sem ég er þakklát fyrir


þær vita hverjar það eru



núna á þessu ári verða liðinn 10 frá því að ég missti pabba minn sem er mjög erfitt að tala um og að hugsa um það- það er alltaf eins og það hafi gerst í gær- og meigum við börn hans vera þakklátt fyrir að hafa alist upp hjá þessum manni yndislegur pabbi í allastaði ekki annað hægt að segja en að foreldrum mínum tókst uppeldið okkar mjög vel en hver og einn vegur og metur það fyrir sjálft sig

það sem hefur bjargað mér öll þessi ár er vinna mín úff ef ég hefði ekki þessa drauma vinnu mína þá veit ég ekki í hva vinnu ég væri í dag

æðisleg vinna elska hana út af lífi mínu þó ég hafi að vera gefast upp á timabili. en það koma alltaf þannig dagar hjá manni en það jafnast bara út og lagast með tímanum.
já það sem er að frétta af mér- er að ég er bara að ala upp 5 mánaðar gamla son minn sem ég elska meira en allt annað

pabbi hans hefur verið mér stoð og stytta líka

hann er æði og já ég elska hann ennþá út af lífi mínu get ekki sagt annað.
en já ég á líka æðislega fjölskyldu mömmu og bræður án þeirra hjálp gæti ég þetta aldrei þó eru búin að bjarga mér mjög mikið takk elsku bræður mínir og mamma mín þið eruð mér allt
en jæja þetta var nú bara smá blogg mun halda áfram að blogga ps er líka með facebook

kveðja Stensa og litli sonur minn Ágúst Váli Eldar Svansson

